BiggiMaus.

Biggi Maus með rauðan sunburst-gítar í svarthvítri ljósmynd
Ljósmynd: Sindri Swan
Tilkynningar / Tónleikar / Útgáfur

Fréttir.

Það nýjasta

ID fagnar 20 ára afmæli

ID

Fyrsta sólóplata Bigga, ID, kom út hjá 12 Tónum í nóvember 2006. Nokkrum vikum fyrr hafði hann komið fram með Tim Simenon og The Bigital Orchestra á Iceland Airwaves. Cargo Records gaf plötuna síðar út í Evrópu og hún hefur hlotið víðtækari dreifingu en nokkur önnur plata Bigga.

Í fyrsta dómnum um plötuna, sem birtist í Fréttablaðinu 8. nóvember 2006, hrósaði Trausti Júlíusson hljóðheimi hennar og persónulegum textum. Honum fannst lögin missterk en heildin sannfærandi og hann tók sérstaklega fyrir fyrstu þrjú lögin, „Drug of choice“, „Perfect Sunday“ og „Just like the end“.

Dómarnir á Íslandi voru misjafnir. Ein skýring kann að vera hversu langt rafpoppið á ID var frá rokkinu sem fólk þekkti af plötum Maus. Eftir að platan kom út í Evrópu fékk hún góða dóma erlendis.

Lesa dóminn í Fréttablaðinu

Skoða ID í Tónlist

Biggi á Skollamjólk

Biggi Maus & MeMMM komu fram á tónleikaröðinni Skollamjólk sem er haldin af MBS skífum á Akureyri. Um er að ræða tónleikaröð í Slímstöðinni, sem er lítið tónleikarými á Eyrinni.

Aðaláherslan er að hljóðrita og taka upp myndbönd sem svo enda á YouTube. Eins konar „Tiny Desk“ þeirra sem sjá um tónlistarhátíðina Mannfólkið breytist í slím.

Biggi og bandið tóku sjö lög á tónleikunum, blöndu af lögum Maus og sólóefni Bigga. Þrjú myndbönd rötuðu á YouTube og má sjá eitt þeirra hér.

Horfa á YouTube

Popparasögur 2.hluti: Ótrúleg ár í London og erfið fæðing sólóferilsins

Í seinni hluta viðtalsins við Bigga í Popparasögum talar hann um árin í London, samstarf sitt og vináttu við meðlimi The Cure, samstarfið við Tim Simenon og ástæður þess að hann ákvað að hætta í tónlist árið 2015. Hann segir líka frá því hvernig það æxlaðist að hann byrjaði aftur í tónlist árið 2021.

Hlusta á Spotify

Biggi talar um Maus árin í Popparasögum

Biggi mætti nýverið í hlaðvarpið Popparasögur og fór yfir feril sinn. Viðtalinu var skipt í tvo hluta.

Í fyrri hlutanum fer Biggi yfir sögu Maus frá stofnun sveitarinnar 1993 til ársins 2004 þegar sveitin fór í 9 ára hlé. Hér er rætt um Músíktilraunir, plötuútgáfur, tónleika og tilraunir erlendis. Hér er allt látið flakka.

Hlusta á Spotify

Biggi í Íslandi í dag

Biggi mætti nýverið í ítarlegt viðtal við Hödd Vilhjálmsdóttur í lokaþætti Íslands í dag. Þar ræddu þau lífið, tilveruna og tónlistina. Viðtalið má sjá hér.

Horfa á Vísi

Eldri fréttir
Birgir Örn Steinarsson — Heimildin

Á þessari síðu mun Birgir birta alla pistla sína.

Sumir birtast einungis hér en aðrir endurbirtir eftir að hafa fyrst birst annars staðar.

Fyrsti pistillinn, „Hvað ég hef lært í skóla lífsins?“, er kominn upp en hann birtist upphaflega í prentuðu blaði Heimildarinnar sem kom út 1. ágúst síðastliðinn undir yfirskriftinni „Veröldin hrundi og það var það besta sem hefur komið fyrir mig“.

Biggi ræðir „Blóðmjólk“ í Bítinu

„Blóðmjólk“ er fyrsta lagið sem Biggi Maus gaf út með MeMMM. Í viðtali í Bítinu á Bylgjunni ræddi hann hvernig lagið gagnrýnir áhrifavaldamenningu og hvernig athygli fólks er nýtt í gróðaskyni á samfélagsmiðlum.

Biggi tók veðmálaauglýsingar áhrifavalda sem dæmi og lýsti áhyggjum af því að þær næðu til ungs fólks. Hann sagði einnig frá textamyndbandinu, þar sem brot úr fréttum eru sett saman við texta lagsins.

Lesa umfjöllunina á Vísi

Útgáfur / Hljómsveitir / Samstarf

Tónlist.

1993 — í dag
Biggi Maus við píanó fyrir framan bókahillur
01 / Sóló

Biggi Maus

ID
2006

Breiðskífa

ID

Fyrsta sólóplata Bigga varð til eftir að hann flutti til London. Á henni fær rafpoppið að njóta sín.

Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. Drug of choice
  2. Perfect Sunday
  3. Just like the end
  4. Planes over skycrapers
  5. The hard way
  6. Reverend Bill Hicks
  7. Reason to grow
  8. Please back off
  9. Don't break the silence
  10. Sofðu með ljósið á
Aðstandendur

Biggi Maus og Tim Simenon eru skráðir fyrir tónlistinni. Tim Simenon og Geoff Smith stýrðu upptökum.

Bigital b-sides
2008

Þröngskífa

Bigital b-sides

Þröngskífa með lögum sem voru unnin á sama tíma og ID en náðu ekki á plötuna.

Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. Me vs the world
  2. Ég er abstrakt
  3. I surrender
  4. Who needs heaven?
Aðstandendur

Lögin eru samin og unnin af Birgi Erni Steinarssyni.

Litli dauði / Stóri hvellur
2024

Breiðskífa

Litli dauði / Stóri hvellur

Sólóplata unnin á Akureyri með áhrifum úr nýbylgju níunda áratugarins.

Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. Má ég snúza meir?
  2. Gleymdu mér
  3. I don't remember your name
  4. Óargardýr
  5. Hversdags-sleikur (Aftur heim)
  6. Ekki vera að eyða mínum tíma
  7. Tölum bara um veðrið
  8. Litli dauði
Aukalög á vínyl
  1. Please don’t go
  2. Fyrirgefning
Aðstandendur

Toggi Nolem pródúseraði öll lögin. „I don’t remember your name“ er ábreiða á lagi Friðriks Dórs og Kiasmos.

Dead Pigeon Society
2025

Breiðskífa · Record Store Day 2025

Dead Pigeon Society

+ The Bigital Orchestra

Upptökur frá 2005–2007 sem komu út á Record Store Day árið 2025.

Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. Bandalag dauðra dúfna
  2. Prinsessan af Wales, Blackheath
  3. Just like the end
  4. Sofðu með ljósið á
  5. Drug of choice, Part. 2
  6. Rock classics
  7. Onomatopoeia
  8. Bless
Aðstandendur

Flytjendur: Biggi Maus og The Bigital Orchestra.

02 / Hljómsveit

Maus

Stofnuð 1993. Hljómsveit, lög og útgáfur í gegnum árin.

Birgir Örn Steinarsson syngur og leikur á gítar, Páll Ragnar Pálsson leikur á gítar, Eggert Gíslason á bassa og Daníel Þorsteinsson á trommur.

Allar kenningar heimsins… …og ögn meira
1994

Breiðskífa

Allar kenningar heimsins… …og ögn meira

Fyrsta breiðskífa Maus kom út sama ár og sveitin vann Músíktilraunir.

Opna á Apple Music
Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. Ósnortinn
  2. Sár
  3. Ljósrof
  4. Líkþrá
  5. Drukknandi ég
  6. Fingurgómakviða
  7. Minn felustaður, minn haus
  8. Lost
  9. Leiftursýn
Aðstandendur

Flytjandi · Maus

Útgefandi · Smekkleysa

Ghostsongs
1995

Breiðskífa

Ghostsongs

Önnur breiðskífa Maus. Lagalistinn miðast við frumútgáfuna á geisladiski.

Opna á Apple Music
Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. Eingyðsvolæði
  2. Djúpnæturgangan
  3. Þinn viðhlæjandi og vinur
  4. Fylgjan
  5. Himbalagimbala
  6. Sætabrauðsdagarnir eru búnir
  7. Fingurgóma kviða
  8. Brúin
  9. Flæði
  10. Slæmur
  11. Girls on film
  12. Ótti
Aðstandendur

Flytjandi · Maus

Útgefandi · Sproti

Lof mér að falla að þínu eyra
1997

Breiðskífa

Lof mér að falla að þínu eyra

Þriðja breiðskífa Maus, með „Síðasta ástin fyrir pólskiptin“ og „90 kr. perla“.

Opna á Apple Music
Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. Síðasta ástin fyrir pólskiptin
  2. 90 kr. perla
  3. Poppaldin
  4. Égímeilaðig
  5. Hreistur og slím
  6. Ungfrú Orðadrepir
  7. Kristalnótt
  8. Halastjarnan rekst á jörðina
  9. Tvíhöfða erindreki
  10. Ryðgaður geimgengill
Aðstandendur

Flytjandi · Maus

Útgefandi · Sproti

Roger O’Donnell lék á hljómborð sem gestur.

Í þessi sekúndubrot sem ég flýt
1999

Breiðskífa

Í þessi sekúndubrot sem ég flýt

Fjórða breiðskífa Maus, með „Allt sem þú lest er lygi“ og „Kerfisbundin þrá“.

Opna á Apple Music
Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. Strengir
  2. Báturinn minn lekur
  3. Dramafíkill
  4. Gefðu eftir (síðasta sjónvarpslagið)
  5. Gerð úr við
  6. Allt sem þú lest er lygi
  7. Kerfisbundin þrá
  8. Kemur og fer
  9. Bílveiki
  10. Maðurinn með járnröddina
Aðstandendur

Flytjandi · Maus

Útgefandi · Sproti

2000

Þröngskífa

How Far Is Too Far?

Kynningar-EP með enskum útgáfum af lögum sveitarinnar.

Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. How Far Is Too Far (Radio Edit)
  2. Strings
  3. Dramajunkie
  4. How Far Is Too Far (Album Version)
Aðstandendur

Flytjandi · Maus

2002

Smáskífa

Nánast ólöglegt

Smáskífa sem kom út í 200 tölusettum eintökum með handgerðu umslagi.

Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. Nánast ólöglegt
  2. Bás 12
  3. Nánast ómögulegt (by 【28†Curver】)
Aðstandendur

Flytjandi · Maus

Útgefandi · Tónlyst

Musick
2003

Breiðskífa

Musick

Fimmta breiðskífa Maus, með enskum textum í forgrunni.

Opna á Apple Music
Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. A Selfish Need
  2. Musick
  3. How Far Is Too Far?
  4. My Favourite Excuse
  5. If You Stay…
  6. Emotional Morsecodes
  7. Without Caution
  8. Life In A Fishbowl
  9. Replacing My Bones
  10. "The Whole Package"
  11. Glerhjarta
Aðstandendur

Flytjandi · Maus

Útgefandi · Smekkleysa

Tónlyst / Lystaukar
2004

Safnplata

Tónlyst / Lystaukar

Tvöföld safnplata með úrvali laga, endurhljóðblöndunum, tónleikaupptökum og demóum.

Opna á Apple Music
Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
Tónlyst
  1. Skjár
  2. Ljósrof
  3. Deepnightwalk
  4. Song About Fluids
  5. Égímeilaðig
  6. 90 kr. Perla
  7. Poppaldinn
  8. Ungfrú Orðadrepir
  9. (Inn Í) Kristalnótt
  10. Allt sem þú lest er lygi
  11. Dramafíkill
  12. Kerfisbundin þrá
  13. Nánast ólöglegt
  14. Musick
  15. Life In A Fishbowl
  16. My Favourite Excuse
  17. Over Me, Under Me
Lystaukar
  1. Liquid Substance (by DeLpHi)
  2. Aftur, aftur og aftur (by Dáðadrengir)
  3. Musick (by 【29†Quarashi】)
  4. Mín uppáhalds afsökun (by 【30†gusGus】)
  5. Maus kynntir
  6. Ósnortinn
  7. Fingurgómakviða
  8. Kemur og fer
  9. Life In A Fishbowl
  10. Crawl
  11. Bláskjár
  12. Snjókóngur
  13. Tvíhöfða erindreki
  14. Þetta er ekki byrjun, bara nýr endir
  15. Þungur hnífur
  16. Far á himni
  17. Beittur trúarbrögðum
  18. Bás 12
Aðstandendur

Flytjandi · Maus

03 / Hljómsveit

Króna

Stuttlíft rokktríó sem starfaði frá 2008 - 2010. Meðlimir voru Birgir Örn Steinarsson (söngur, gítar og hljómborð), Hjalti Jón Sverrisson (bassi) og Jón Valur Guðmundsson (trommur og söngur).

04 / Samstarf

Önnur verk

Gestaframlög, samstarfsverkefni, tónlist fyrir kvikmyndir og annað efni.

2001

Gestasöngur

Hallilúja

Hallilúja var sólóverkefni Haralds F. Gíslasonar úr Botnleðju. Biggi söng á tveimur lögum á plötunni Hallilúja, sem kom út árið 2001.

2003

Textahöfundur

Von mín er sú

Land & synir

Biggi samdi textann við lagið.

2006

Gestasöngur

Ósögð orð og ekkert meir

Rúnar Þórisson

Biggi söng í tveimur lögum á Ósögð orð og ekkert meir, annarri sólóplötu Rúnars Þórissonar úr Grafík.

Goldmine
2007

Breiðskífa

Goldmine

Silvía Nótt

Biggi samdi lögin á einu breiðskífu hinnar stórkostlegu Silvíu Nætur ásamt Sölva Blöndal úr Quarashi.

Lagalisti og aðstandendur
Lagalisti
  1. Welcome
  2. Calling
  3. Goldmine
  4. Right Now
  5. Material Girl
  6. Danger Love
  7. Snowflake
  8. Thank You Baby
  9. Harajuku
  10. Tame the Horse
  11. The Gospel of Silvia Night
Aðstandendur

Lagasmíðar: Birgir Örn Steinarsson og Sölvi Blöndal.

2022

Gestasöngur

Ekki í dag

Offbít

Biggi var gestasöngvari í „Ekki í dag“ á Heimagerðum veruleika, fyrstu plötu rappsveitarinnar Offbít.

2023

Samstarf

Poppstjarna í felum

Drengurinn fengurinn & Biggi Maus

„Poppstjarna í felum“ er á breiðskífunni Akureyri All Stars I (2023). Drengurinn fengurinn er sólóverkefni Egils Loga Jónassonar. Biggi og Egill sömdu lagið saman og syngja dúett í því. Biggi spilar einnig á bassa, gítar og hljómborð.

2024

Gestasöngur

Indifference is a Crime

Norðurhjari

Biggi var gestasöngvari í „Indifference is a Crime“, fyrstu smáskífu Norðurhjara, sem kom út árið 2024.

2025

Smáskífa

Blokkaðu mig

Biggi Maus & Ruddinn

Biggi Maus og Ruddinn gáfu út smáskífuna „Blokkaðu mig“ árið 2025. Biggi samdi melódíuna og textann, söng og spilaði á gítar.

05 / Óútgefið

Óútgefið / Viltu kafa dýpra?

Live Extras w/The Bigital Orchestra 2006

Biggi Maus & The Bigital Orchestra

Opna á Bandcamp

Frumgerð: upplýsingar sem vantar eru merktar sem óútfylltir kaflar, ekki tilbúnar útgáfur.

Myndbönd.

Biggi Maus
Heima sessjón
Maus
Annað

TikTok.

Tíu mest horfðu myndböndin á opinbera prófílnum 14. nóvember 2026.

Leyfið mér að segja ykkur svolítið um Bubba sem enginn veit!

≈ 20 800 áhorf

Horfa á TikTok ↗

Ákvað að prufa syngja þennan texta minn í fyrsta skipti.

5 423 áhorf

Horfa á TikTok ↗

Það hefur engum íslenskum tónlistarmanni verið slaufað.

5 416 áhorf

Horfa á TikTok ↗
Skoða allar færslur á TikTok ↗
Orð / Hugleiðingar / Bréf

Pistlar.

Persónulegt rými

Hvað ég hef lært af skóla lífsins?

Það besta sem kom fyrir mig var þegar tilvera mín molnaði í sundur árið 2003. Ástarsamband leystist upp. Ég datt út af húsnæðismarkaðnum. Átti aðeins efni á að leigja húsnæði án baðaðstöðu. Hljómsveitin mín gafst upp á ruglinu og streðinu. Leystist upp í einingar sínar. Menn sem ég taldi vini voru eingöngu viðhlægjendur. Skömmu síðar þekkti ég alla bardrauga Reykjavíkur með nafni. Ég óskaði þess heitast að geta endað hvert kvöld með því að týna mér í örmum þeirrar fyrstu sem brosti á móti þráhyggjufullri störu minni.

Ég hafði aldrei ætlað að verða blaðamaður en allt í einu hélt ég utan um dægurmáladeild stærsta dagblaðs landsins. Sannleikurinn var að ég var kominn með nóg af því að skrifa um sama fólkið sem var að endurtaka sömu hluti á sama tíma árs. Hroka mínum sveið undan sköpunarverkum þeirra sem ég fjallaði um. Sjálfur var ég auðvitað fullur af ófæddum meistaraverkum sem ég náði þó aldrei að byrja á. Ég óttaðist að þau myndu breytast í steinbörn í maga mér. Framar öllu, þráði ég viðurkenningu og upphafningu. Ég var við það að klofna eins og atóm í kjarnorkusprengju.

Einn morguninn lá ég í fósturstellingu á klósettgólfinu inn á Fréttablaðinu. Ég áttaði mig á einföldum sannleika. Ég þyrfti að lifa. Skyndilega skyldi ég að ef ég myndi ekki byrja að lifa, þá myndi ég deyja. Ef ekkert skipti raunverulega máli lengur, gæti ég alveg eins elt það eina sem ég hafði aldrei almennilega treyst á. Innsæi mitt. Ég vissi að til þess þyrfti ég að kippa undan mér öryggisnetinu og vaða inn í óvissuna.

Ég gekk beint að skrifborðinu mínu, skrifaði uppsagnarbréfið og sendi það án yfirlesturs. Því næst tilkynnti ég öllum að ég væri að flytja til London. Ég var ekki komin íbúð, ekki vinnu og ef satt skal segja – engan tilgang. Ég ætlaði bara að fara út og vera tónlistarmaður. Einu tveir mennirnir sem ég þekkti þar voru í tónlistarbransanum. Það dugði mér. Mér var alveg sama hvort þetta myndi takast eður ei. Ég vissi bara að ég gæti ekki lifað með þá vitund að hafa aldrei látið á það reyna. Það voru engin rök í þessari ákvörðun. Það var einhver innri tilfinning. Þetta var eitthvað innst inni sem vissi að ég myndi gera þetta einn daginn. Nú var komið að því.

Eins og fyrir galdur féll allt upp í hendurnar á mér stuttu eftir að ég tók þessa ákvörðun. Fékk húsnæði á frábærum stað í Blackheath hverfi London og Fréttablaðið bauð mér svo að vera áfram á launum hjá þeim ef ég samþykkti að skrifa þaðan.

Ég sagði upp leigunni og ungu konunni sem ég var að deita. Henti húsgögnunum mínum í Sorpu, gaf bíldrusluna í partasölu og færði geisladiskasafnið í möppur. Vafði hljóðfærum mínum og fötum í cellofan á bretti hjá Eimskip og sendi aleiguna af stað með skipi. Rakaði af mér hárið og hoppaði upp í næstu flugvél.

Fyrstu daganna var það eina sem ég gerði að ráfa um London með A-Z bókina í töskunni, tónlist og Máttinn í Nú-inu í i-Podnum. Það var engin fortíð. Það var engin framtíð. Það var bara eitt skref í einu og hvað sem myndi henta mig þá og þegar.

Eftir 2 vikur af því að yrða varla á aðra lifandi veru fór ég að sjá kostina í því að gera einhver framtíðarplön. Ég bæði hataði og elskaði að vera í maurabúinu. Þar sem enginn horfir í augun á þér. Enginn vissi hver þú varst. Þar sem fortíð þín skipti engu. Ég kom mér í samband við eina umboðsmanninn sem ég þekkti borginni og fékk mér aukavinnu á barnum á horninu. Það var nóg.

Án þess að átta mig á því á þeim tíma lagði þessi ákvörðun mín grunninn fyrir allt líf mitt í dag. Ég kynntist ótrúlegu fólki, rataði inn í villtustu ævintýr sem gaman væri að segja frá síðar. Fyrst og fremst lærði ég hvernig maður fylgir eiginn sannfæringu. Það er fullvissa mín að vegna þess að ég þorði að þramma stíginn sem enginn tróð - leiddi lífið mig inn á brautir sem skapa alla veröld mína í dag. Ég dýpkaði mig sem listamann. Lenti í aðstæðum sem vöktu upp áhuga minn á sálfræðinni. Einnig varð þetta til þess að ég kynntist eiginkonu minni.

Í sálfræðinni myndum við skilgreina innsæi sem mat sem verður til án rökrænnar hugsunar. Í Tao-isma kalla þeir þetta ‚Wu-wei‘. Einhvers konar visku náttúrunnar sem keyrir á æðri og eldri lögmálum en huganum er kleift að ná utan um. Að reyna skilja þau væri svona svipað ómögulegt verkefni og fyrir maur að ætla að skilja hvernig tölva virkar. Samt er í boði fyrir alla að tappa sig inn í þessa vitund á hverju einasta augnabliki. Það gerir maður með því að þjálfa athygli sína handan huga og tilfinninga. Að verða vitundin sjálf sem verður var við, í stað þess að vera hugur sinn eða tilfinningar.

Ef skóli lífsins hefur kennt mér eitthvað, þá er það að fylgja þessu innsæi. Gefa mig því algjörlega á vald og hætta að reyna skilja eða spá fyrir um allt sem var eða koma skal. Treysta því að þessi vitund leiði mig að réttri ákvörðun og/eða aðstæðum.

Öll verstu skeið ævi minnar hafa einkennst af því að ég dagdreymi of lengi og gleymi að tappa inn í þessa náttúrulegu auðlind. Þá fer hugur minn aftur í það að spinna Söguna miklu. Söguna um mig, frá mér til mín - sem fjallar iðulega um mitt stórkostlega mikilvægi sem einstaklingur.

Líkamlegur sársauki er þess eðlis að athygli þín sogast inn í miðjuna á honum. Svo þegar athyglin læsist í verknum yfirtekur hann vitundina og verður sjálfur alheimurinn. Eina leiðin út er að æfa sig í að færa athyglina að einhverju öðru. Það er eins með andlegan sársauka. Festist athyglin okkar í honum magnast upp slítandi orka í taugakerfinu sem birtist okkur í formi óþægilegra tilfinninga. Að læsast í miðju sjálfs síns er æðsta birtingarmynd andlegra veikinda. Kannski stærsti andlegi sársauki sem upplifaður verður? Þess vegna fæðist andleg vakning yfirleitt í andlegum sársauka. Hann neyðir mann til þess að færa athyglina frá miðju sjálfsins. Frá „hugmyndinni“ um „mig“ að einhverju öðru. Að innsæinu. Wu-wei, einskonar alheimsvitund í dulargervi persónu.

Með vaxandi notkun á gervigreind er nú uppi kenningar um að næsti andlegi kvilli manna verði vegna  þekkingar-oftrausti á þessa nýju tækni. Að í stað þess að fylgja innsæinu, spyrjum við bara gervigreindina hvað sé best. Hræðilegt í ljósi þess að tæknin hefur ekki og mun aldrei öðlast aðgangur að meðvitund lifandi veru. Aðgangur að wu-wei lokaður um alla tíð. Guð minn góður hvað hún bullar líka stundum mikið! Hvað verður um þá sem fórna sjálfu innsæinu fyrir siðlausa klappstýru?

Slakið á. Full athygli á stund og stað. Hér er allt sem þarf.

Spurningar / Hugmyndir / Samtal

Spurðu mig
að hverju sem er.

Engin komment. Bara spurningar.

Ertu með spurningu? Um tónlist, lífið, sköpunina eða eitthvað allt annað. Sendu hana hingað. Ég les þær sjálfur og vel hvort ég svara í pistli.

Nafn og viðbótarnetfang eru valfrjáls. Netfang sendanda fylgir tölvupóstinum. Spurning gæti verið birt í pistli, en nafn eða aðrar persónuupplýsingar verða ekki birtar án sérstaks leyfis. Ekki senda viðkvæmar persónuupplýsingar.

Eftir birtingu pistils er ekki hægt að skrifa athugasemdir við hann.

Spurningin opnast sem drög í póstforritinu þínu. Þar geturðu sent hana.

Vínyll / Geisladiskar

Varningur.

Verslun
Æviágrip / Ferill / Verk

Sagan.

1976 — í dag

About Biggi Maus

Biggi Maus is the stage name of Icelandic singer, songwriter and guitarist Birgir Örn Steinarsson. He co-founded the Reykjavík rock band Maus in 1993. The band won Iceland’s Músíktilraunir competition and went on to release albums including Lof mér að falla að þínu eyra (1997), Í þessi sekúndubrot sem ég flýt (1999) and Musick (2003).

After moving to London, he formed The Bigital Orchestra and worked with Tim Simenon on his solo debut, ID (2006). He returned to releasing music with “Fyrirgefning” in 2021 and followed it with Litli dauði / Stóri hvellur in 2024. In 2025 he released the long-shelved Bigital Orchestra recordings as Dead Pigeon Society on vinyl. Based in Akureyri, he performs with Biggi Maus & MeMMM.

The full story below is in Icelandic.

Efnisyfirlit

Halló, Internet! Hér er tónlistarsagan mín.

Ég heiti Birgir Örn Steinarsson en Biggi Maus er listamannsnafnið sem þjóðin gaf mér. Ég fæddist 17. maí 1976 í Reykjavík og ólst að mestu upp sem blokkarbarn í Árbænum.

Pabbi minn var trommari í ballbransanum og tónlist var því alltaf stór hluti af heimilislífinu. Það kom því fáum á óvart þegar ég, tíu ára gamall, bað um minn fyrsta skemmtara í jólagjöf. Fyrir valinu varð Casio SK-5, lítið en stórmerkilegt hljóðfæri sem innihélt meðal annars trommuheila og einfaldan sampler. Það var með þennan skemmtara í höndunum sem ég áttaði mig á því að ég ætti auðvelt með að semja mín eigin lög.

Ungur drengur með hljómborð við hlið manns fyrir framan trommusett

Fljótlega eftir það byrjaði ég að læra á píanó en eldri bróðir minn, Viktor, fór að læra á gítar.

Þegar við vorum komnir á unglingsárin gengum við í okkar fyrstu hljómsveit. Rétt eins og pabbi var þetta ballsveit. Þrátt fyrir að vera langyngstur í bandinu tókst mér að sannfæra hina um að spila líka eitthvað af lögunum mínum. Það fannst mér langmest spennandi. Hinir höfðu hins vegar meiri áhuga á að hamast við að spila lög eftir aðra og reyna að maka krókinn á ballmarkaðnum.

Ég var þrettán ára og nýbúinn að uppgötva pönkið í gegnum kvikmyndina Rokk í Reykjavík. Um svipað leyti heillaðist ég af hljómsveitum á borð við The Cure, Joy Division, Violent Femmes og Pixies.

Það var ekki aftur snúið. Ég átti aldrei eftir að starfa í ballsveit aftur.

Um svipað leyti byrjaði ég líka að stelast í gítarinn hans bróður míns þegar hann var ekki heima.

Svarthvít ljósmynd af hljómsveitinni Maus

Apríl 1993 – Maus verður til

Skömmu eftir að við byrjuðum í Menntaskólanum við Sund ákváðum ég og vinur minn, Eggert Gíslason, að stofna hljómsveit. Hugmyndin var einföld: Við ætluðum að einbeita okkur að frumsaminni tónlist í anda þeirra hljómsveita sem við elskuðum. Eggert myndi spila á bassa og ég á gítar.

Markmiðið var ekkert sérstaklega hógvært. Við ætluðum að vinna Músíktilraunir árið eftir.

Fyrstu æfingarnar fóru fram í apríl 1993, inni í stofu á heimili Eggerts í Melbænum í Árbæjarhverfi.

Fljótlega benti vinur okkar, Curver Thoroddsen, okkur á kauða úr Vesturbænum sem væri með rétta lúkkið, hefði áhuga á gamla íslenska pönkinu og ætti þar að auki flottan gítar og magnara. Ég hringdi í Pál Ragnar Pálsson og hann var kominn í hljómsveitina áður en símtalinu lauk.

Við prófuðum þó nokkra trommuleikara og nokkra söngvara áður en Eggert benti okkur á að við þekktum nú þegar frábæran trommara úr Árbænum. Þannig varð Daníel Þorsteinsson síðastur til að ganga til liðs við okkur. Danni lyfti bandinu strax upp á næsta stig.

Fyrstu tónleikarnir okkar voru í júní 1993, á Óháðu listahátíðinni sem haldin var í Faxaskála, einhvers staðar á milli þess sem Edition-hótelið og Harpa standa í dag.

Þá hét sveitin Slip en í ágúst sama ár vorum við búnir að taka upp nafnið Maus. Hugmyndina átti Danni, sem hafði séð nafnið framan á myndasögu eftir Art Spiegelman.

Þegar við skráðum okkur til leiks í Músíktilraunum 1994 voru allir textarnir okkar orðnir íslenskir og við farnir að tileinka okkur íslensku merkingu orðsins maus, sem þýðir að gera eitthvað sem tekur athygli og tíma. Okkur fannst það smellpassa.

Þrátt fyrir að eiga enga vini til að hópa saman í salnum á Músíktilraunum tókst okkur samt að sigra.

Fljótlega eftir sigurinn var okkur boðið að taka þátt í safnplötunni Smekkleysa í hálfa öld, sem kom út á þjóðhátíðardag Íslendinga, 17. júní 1994.

Kápa safnplötunnar Smekkleysa í hálfa öld

Þetta fannst okkur einstaklega spennandi. Smekkleysa var í eigu meðlima Sykurmolanna, en þar voru meðal annars hetjurnar okkar úr Þeysurunum, Purrki Pillnikk og Tappa Tíkarrassi, sem við höfðum fyrst kynnst í Rokki í Reykjavík.

Safnplatan er líka merkileg fyrir þær sakir að á henni er að finna fyrstu útgefnu lög Maus, Sigur Rósar og Ununar.

Við lögðum fram lagið „Skjár“ og gerðum óvart tónlistarmyndband sem tókst að verða bannað á RÚV fyrir guðlast.

Ekki amaleg byrjun.

Úrklippa úr Morgunblaðinu um sigur Maus í Músíktilraunum, með fyrirsögninni Nýbylgjusigur

Nóvember - 1994 - Allar kenningar heimsins... og ögn meira

Þetta varð upphafið að samstarfi okkar við Smekkleysu, sem gaf út fyrstu breiðskífuna okkar, Allar kenningar heimsins... og ögn meira, á geisladiski 4. nóvember 1994.

Platan var hljóðrituð fyrir hljóðverstímana sem við höfðum fengið í verðlaun fyrir sigurinn í Músíktilraunum. Platan var að mestu hljóðrituð í Stúdíó Sýrlandi með Jóni Skugga um sumarið 1994, en einhverjar upptökur fóru fram í Studio Gný. Við sömdum um það að fá að vinna á nóttunni og fá því að vera 48 næturtíma í stað 24 í dagtíma. Geisladiskurinn vakti þó nokkra athygli í fjölmiðlum þetta árið og seldist sæmilega. Eintök eru ófáanleg í dag og platan er ein þeirra sem hefur aldrei séð endurútgáfu á vínyl.

Plötuumslag Allar kenningar heimsins... og ögn meira
Biggi Maus við hljóðnema

Nóvember 1995 - Ghostsongs

Þegar kom að því að fjármagna upptökur á næstu plötu var Smekkleysa hins vegar ekki tilbúin að leggja okkur lið.

Á þessum tíma var rándýrt að hljóðrita plötur og engin leið fyrir blokkarbörn úr Árbænum að galdra fram aukasjóði fyrir slíku.

Til allrar lukku bauð Steinar Berg okkur útgáfusamning hjá fyrirtæki sínu, Spori.

Önnur breiðskífan okkar, Ghostsongs, var hljóðrituð um haustið og kom út í byrjun nóvember 1995. Platan var tekin upp í Grjótnámunni af Páli Borg sem átti eftir að vinna meira með sveitinni seinna. Þrátt fyrir að ég söng alltaf lögin á íslensku á tónleikum, krafðist Steinar Berg þess að þau yrðu á ensku á plötunni þar sem hann hafði trú á því að hann gæti selt þessa tónlist erlendis. Á plötunni vorum við byrjaðir að leika okkur við að blanda íslenskum pönkáhrifum við einhvers konar íslenska þjóðlagahefð. Útkoman var mjög þung og myrk. Við vorum mjög ánægðir með niðurstöðuna.

Plötukápa Ghostsongs eftir Maus

Þótt hún seldist verr en frumraunin er óhætt að segja að hún hafi skilið eftir sig spor í íslensku tónlistarlífi. Meðlimir þungarokksveitanna Mínus og Sólstafa hafa til dæmis sagt mér að platan hafi haft mikil áhrif á tónlist þeirra.

Það þykir mér vænt um.

Ljósmynd af meðlimum Maus

Nóvember 1997 - Lof mér að falla að þínu eyra

Sumarið 1997 var óskað eftir því að við skiluðum inn lagi fyrir kvikmyndina Blossa. Við höfðum þá um vorið samið lag sem okkur fannst nokkuð grípandi. Textinn fjallaði auk þess um möguleg áhrif splunkunýs fyrirbæris á samskipti fólks.

Kvikmyndaplakatið fyrir Blossa 810551

Lagið hét „Égímeilaðig“ og varð fyrsti stóri slagarinn okkar þegar það kom út um sumarið.

Um svipað leyti hafði vinkona okkar úr Árbænum, fyrirsætan Elísabet Davíðsdóttir, eignast nýjan kærasta sem hún var spennt að kynna okkur fyrir.

Það var Roger O'Donnell, hljómborðsleikari The Cure, sem hún vissi vel að væri uppáhaldshljómsveitin mín allra tíma.

Eftir að hún kynnti okkur bað Roger um demó til að prófa að spila yfir. Við sendum honum lögin „Poppaldin“ og „Tvíhöfða erindreki“. Hann stráði töfradufti sínu yfir þau og sendi okkur aftur.

Þriðja platan okkar, Lof mér að falla að þínu eyra, var hljóðrituð í september 1997, kom út í nóvember sama ár og seldist í gull. Platan var hljóðrituð og mixuð í Grjótnámunni af Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni sem hafði gert garðinn frægan með Todmobile. Það var hugmynd Steinars Berg að fá til liðs við okkur hetju úr poppheimum sem hafði sjálfur reynslu úr gamla pönkinu. Roger eyddi fjórum dögum með okkur í hljóðverinu og spilaði inn á flest lög plötunnar. Hann krafðist þess svo að við myndum mastera plötuna í Metropolis í London þar sem Tim Young sá um lokafrágang.

Plötukápa Lof mér að falla að þínu eyra

Það er eiginlega ótrúleg staðreynd að sex af tíu lögum plötunnar rötuðu inn á Íslenska listann, sem var þá stærsti vinsældalisti landsins.

Vorið eftir vann Maus Íslensku tónlistarverðlaunin sem hljómsveit ársins. Við höfðum verið tilnefndir í flestum öðrum flokkum en þessi var einn af fáum þar sem Björk eða platan hennar Homogenic var ekki keppinautur.

Meðlimir hljómsveitarinnar Maus

Nóvember 1999 - Í þessi sekúndubrot sem ég flýt

Tveimur árum síðar gáfum við út plötuna Í þessi sekúndubrot sem ég flýt og náðum með henni að halda okkur á floti í meginstraumnum um stund til viðbótar. Platan var okkar fyrsta sem var hljóðrituð stafrænt en fram til þessa höfðum við einungis unnið með fjölrása segulband. Þetta þýddi að við gátum leyft okkur að flytjast á milli staða með upptökur. Platan er því hljóðrituð á nokkrum stöðum, þar á meðal í Stúdíó Sýrlandi, Grjótnámunni og útibúi Hljóðrita sem var þá í Túnunum í Reykjavík. Aftur fengum við Pál Borg með okkur enda einstaklega góður í samstarfi. Í þetta skiptið réðum við inn Daníel Ágúst Haraldsson sem söngpródúser. Einnig fengum við Samúel Jón Samúelsson til þess að semja og útsetja með okkur strengi fyrir tvö lög.

Plötukápa Í þessi sekúndubrot sem ég flýt

Á þeirri plötu er að finna þau tvö lög sem eru hvað oftast efst í streymi hjá Maus í dag, „Allt sem þú lest er lygi“ og „Kerfisbundin þrá“.

Á næstu Íslensku tónlistarverðlaunum fékk ég styttu fyrir textagerð og Danni fyrir trommuleik.

Hljómsveitin Maus við Musick-kaflann

Júní 2003 - Musick

Þrátt fyrir vinsældirnar og viðurkenningarnar gekk okkur illa að fá útgáfufyrirtækið okkar til að fjármagna næstu upptökur.

Á þessum tíma höfðu orðið eigendaskipti á Spori, sem var nú komið undir Skífuna. Okkur leið eins og við værum neðstir í bunkanum og ákváðum því að losa okkur undan samningnum.

Um svipað leyti bauðst okkur að fara til Þýskalands til að hljóðrita næstu plötu. Þarlent fyrirtæki og færir upptökustjórar buðust til að fjármagna allar upptökurnar og láta okkur samt eftir helming eignarréttarins.

Fimmta plata okkar, Musick, var því hljóðrituð í Dortmund í Þýskalandi, undir upptökustjórn Jochen Naaf og Marcus Meyersiek. Var það einstaklega ánægjulegt ferli þar sem við leyfðum okkur að prufa okkur áfram með nýjar vinnuaðferðir. Ákveðið var að nýta stafrænu tæknina til fulls og er Musick því fyrsta Maus-platan þar sem er stuðst við click-trakk. Það gaf pródúzerum okkar áður óþekkt frelsi að vinna áfram með lögin að upptökum loknum. Strákarnir eyddu þremur vikum í Dortmund á meðan ég var viku lengur til þess að klára söngupptökur. Þetta var sumarið 2002. Við vorum engan veginn vanir því að sitja yfir og pússa upptökur of lengi en þjóðverjarnir tóku sér 6 mánuði í verkið. Platan var þannig tilbúin í byrjun árs 2003 en kom svo út þá um sumarið, um ári eftir að upptökur hófust. Í þessu millibilsástandi náðum við aðeins að fóta okkur upp á nýtt. Komumst í kynni við umboðsmenn erlendis sem á Íslandi. Bandið var orðið svoldið stórt þarna. Minnir að þetta hafi verið eina tímabilið sem við vorum t.d. með rótara.

Plötukápa Musick

Þegar kom að því að finna útgefanda á Íslandi var Smekkleysa aftur tilbúin til samstarfs, á sömu forsendum og þegar fyrsta platan kom út.

Musick kom út sumarið 2003 og fékk góðar viðtökur, bæði hjá gagnrýnendum og plötukaupendum.

Teikning af manni með hönd við eyrað

Sköpunarferli Maus endaði á safnplötu

Ári síðar gáfum við út tvöfalda safnplötu á geisladiski sem hét Tónlyst / Lystaukar. Fyrir hana flugum við Jochen og Marcus til Íslands og hljóðrituðum tvö ný lög í Klink & Bank þar sem ég var með hljóðver ásamt Curver og Alison McNeil úr Kimono. Síðustu tvö lögin sem við unnum saman sem hljómsveit voru Over me, Under me og óútgefið lag sem heitir Cover my eyes. Það fyrra settum við á safnplötuna en hinir þrír tóku ákvörðun um að sleppa Cover my eyes af ástæðum sem ég hef aldrei skilið. Það lag er enn algjörlega óaðgengilegt í dag.

Fyrri diskurinn innihélt öll vinsælustu lög sveitarinnar, auk eins nýs lags, en sá síðari var stútfullur af áður óútgefnu efni.

Plötukápa Tónlyst / Lystaukar

Án þess að það hefði nokkurn tímann verið ákveðið lauk þar útgáfusögu Maus.

Sveitin fór í níu ára pásu eftir að Eggert tilkynnti okkur að hann og fjölskylda hans væru að flytjast til San Francisco um óákveðinn tíma.

Hlutirnir æxluðust þannig að við fjórir áttum ekki eftir að vera í sama herbergi næstu árin. Palli fór til Eistlands að læra klassískar tónsmíðar og Danni til Barcelona að læra grafíska hönnun.

Maus spilaði ekki aftur saman fyrr en árið 2013 og síðan þá höfum við aðeins æft og spilað gömlu lögin.

En þótt Maus væri komið í pásu var tónlistarævintýrinu mínu hvergi nærri lokið.

Biggi Maus í svörtum jakka og með bindi

2004–2007 – London, The Bigital Orchestra og fyrsta sólóplatan

Þegar ljóst varð að Maus væri að leysast upp í einingar sínar var ég staðráðinn í að nýta það tengslanet sem sveitin hafði byggt upp í London og freista gæfunnar á nýjum slóðum.

Maus hafði í um tvö ár starfað með breskum umboðsmanni, Paul Ablett, sem hafði einhvern veginn heyrt af okkur. Hann hvatti mig til að flytja til London og halda áfram að vinna að tónlist þar.

Skömmu eftir að ég tók ákvörðunina bauðst mér húsnæði á ótrúlegum kjörum fyrir tilstilli vináttu okkar við meðlimi The Cure. Roger O'Donnell bauðst líka aftur til að spila á nýju plötunni sem ég var byrjaður að vinna að.

Ég tók því stökkið og flutti til London í september 2004. Þar kom ég mér fyrir í Blackheath-hverfinu, sunnan við Thames-ána.

Paul Ablett kom mér í samband við Tim Simenon úr Bomb the Bass, sem hafði áður stýrt upptökum fyrir meðal annars Depeche Mode, Neneh Cherry og Björk.

Helsti samstarfsmaður Tims á þessum tíma var Geoff Smith, piltur á mínum aldri. Saman tóku þeir að sér að leiða mig í gegnum upptökurnar á fyrstu sólóplötunni minni.

Vinnan hófst á Íslandi árið 2004 en ferlið reyndist einstaklega hægt, aðallega vegna þess hversu langan tíma öll ákvarðanataka tók.

Ég og Geoff sáum að mestu um upptökurnar í London og sendum þær síðan á CD-ROM-diskum til Amsterdam, þar sem Tim bjó. Það gat tekið hann einn til tvo mánuði að skila einhverju til baka.

Platan var loksins fullgerð í maí 2006. Við tóku nokkrar vikur af lögfræði fundum og leiðindum, sem var hlið af bransanum sem ég hafði aðeins fengið smjörþefinn af áður þegar þýskt publishing-fyrirtæki reyndi sitt besta til þess að hafa allan rétt af hljómsveitinni Maus. Ég hafði samband við Sigga Eggerts myndlistarmann og bauð honum að gera plötukápuna. Ákveðið var að platan fengi nafnið ID - sem er bæði tilvísun í persónuskilríki og hugmyndir Freuds um frumsjálfið. Það fannst mér smellpassa.

Plötukápa ID

Á þessum tíma hafði ég meðal annars fengið mér vinnu á bar rétt handan við hornið frá íbúðinni minni. Barinn hét The Princess of Wales og þar kynntist ég heilmörgu ungu fólki sem var í tónlistarnámi við Trinity School of Music, skammt frá.

Einhvern veginn tókst mér að safna í kringum mig heilli hljómsveit til að flytja nýju lögin á tónleikum.

Biggi Maus og The Bigital Orchestra

Við kölluðum okkur The Bigital Orchestra.

Hljóðfæraskipanin var allt önnur en ég hafði vanist. Þar komu saman rafhljóð, ásláttarhljóðfæri, fiðla, harmonikka, óbó, bassi, hljóðgervlar og gítar.

Liðsmenn voru Ben Chetwood, Ricardo Gosalbo, Iain Wilson, Jak Berry og Natalie Spicer. Í örfá skipti lék Tim Simenon með á samplera og triggera fyrir elektróník. Þegar við hituðum upp fyrir Kaiser Chiefs í Listasafni Reykjavíkur var Viktor bróðir minn einnig með á gítar. Þetta var hópur af áhugasömu ólíku fólki sem vildi bara sjá hvað þau gætu galdrað saman.

Á meðan við biðum eftir að Tim kláraði sína vinnu vorum við raunar komnir langt með að útsetja og hljóðrita efni á aðra plötu.

Fyrsta sólóplatan mín, ID, kom loksins út á vegum 12 Tóna í nóvember 2006.

Ég spilaði víða um London með nýju tónleikasveitinni minni og við fórum meira að segja í tónleikaferðalag til Ítalíu áður en við spiluðum í Listasafni Reykjavíkur á Iceland Airwaves-hátíðinni.

Erlendir blaðamenn hrósuðu frumleikanum og hugrekkinu í útsetningunum en sumir íslenskir blaðamenn voru heldur neikvæðari.

Platan fór undir radar þessi jól.

Ég elti síðan ástina heim um mitt ár 2007 og stofnaði fjölskyldu.

Upphaflega var planið að klára plötuna sem ég hafði unnið með The Bigital Orchestra. En því lengur sem ég var frá London, þeim mun augljósara varð að bandið myndi líklega aldrei spila saman aftur.

Ég sá heldur enga raunhæfa leið til að setja saman sambærilega hljómsveit á Íslandi og hætti smám saman að sjá tilganginn í því að klára plötu sem ég gæti síðan ekki flutt á tónleikum.

En lögin hurfu auðvitað ekki neitt. Til allrar lukku passa ég frekar vel upp á allt efni sem ég vinn. Ég hafði fengið alla liðsmenn The Bigital Orchestra í heimsókn til mín í hljóðverið hans Gísla Kristjánssonar í London og náð að taka slatta upp áður en ég flutti heim. Einnig fann ég æfingarsessjón fyrir Iceland Airwaves tónleikana sem höfðu verið hljóðritaðir í Arc Sound hljóðverinu í New Cross. Þær voru einungis í stereó og illa mixaðar. Með nýrri hljóðtækni sem gerði vart við sig í kringum 2022 gat ég nú aðgreint hljóðfærin af þeim upptökum og endurmixað upp á nýtt. Ég fann svo líka allar upptökurnar sem ég hafði gert í hljóðverinu hans Gísla. Hægt og rólega náði ég loksins að raða The Bigital Orchestra plötunni saman eins og hún hafði upphaflega verið hugsuð. Þannig æxlaðist það að ég gaf plötuna út á vínyl fyrir Record Store Day 2025 - 18 árum á eftir áætlun. Platan heitir Dead Pigeon Society og var aðeins pressuð í 100 eintökum.

Plötukápa Dead Pigeon Society
Biggi á sviði með gítar og hljómborð ásamt bassaleikara

2008–2020 – Króna, kvikmyndir og tónlistin sem fór í pásu

Sumarið 2008 var mig aftur farið að langa til að spila rokk.

Ég hafði samband við tvo félaga sem ég hafði kynnst í gegnum Maus á sínum tíma.

Annar var bassaleikarinn Hjalti Jón Sverrisson, sem við höfðum kynnst í heimsóknum okkar til Seyðisfjarðar. Hann hafði áður starfað með síðrokksveitinni Miri.

Hinn var gamli Maus-rótarinn Jón Valur Guðmundsson, sem gerði tónlist undir nafninu Bubble Boy og var auk þess trommari rokksveitarinnar Who Knew.

Þeir tóku vel í rokkkallið og sveitin Króna varð til.

Nafnið var vísun í efnahagshrunið sem hafði orðið nokkrum mánuðum fyrr.

Króna starfaði í um tvö ár og gaf út nokkur lög á Tónlist.is. Við spiluðum líka á tónleikum hér og þar um landið.

Það reyndist hins vegar aðeins flóknara að halda úti rokksveit þegar ungabörn voru komin á heimilin.

Sveitin flosnaði loks upp eftir að við misstum æfingarhúsnæðið okkar í Hafnarfirði. Um svipað leyti var bæði gítarmagnaranum mínum og hljómborðunum stolið.

Þar með hurfu nánast allar forsendur fyrir því að halda áfram að starfa í hljómsveit.

En sköpunarþörfin fann sér aðra farvegi.

Á þessum tíma var ég farinn að fá töluverða útrás fyrir hana með því að skrifa kvikmyndahandrit með vini mínum Baldvini Z. Saman unnum við að Vonarstræti, Reyni sterka og Lof mér að falla.

Á sama tíma var ég í BS-námi í sálfræði við Háskóla Íslands.

Tónlistin færðist smám saman aftar í forgangsröðina. Einu skiptin sem ég hugsaði eitthvað að ráði um hana voru þegar ég tók upp kassagítarinn heima.

Maus spilaði líka á einum til þremur tónleikum á ári og það nægði mér ágætlega.

Árið 2015 prófaði ég að gefa út tvö kassagítarlög, við lítil sem engin viðbrögð.

Eftir tvö ár í frekara sálfræðinámi í Kaupmannahöfn var tónlistarmetnaðurinn minn nánast alveg lognaður út af. Og þegar ég kom aftur heim og komst inn í tuttugu manna hópinn í meistaranámi í sálfræði við Háskóla Íslands virtist sú ákvörðun endanlega innsigluð.

Ég var sáttur við að vera hættur að gefa út tónlist.

Eða það hélt ég að minnsta kosti.

Biggi Maus

2021 – Tónlistin bankar aftur upp á

Í dag efast ég um að það sé yfirhöfuð hægt að taka svona ákvarðanir.

Því þótt ég væri ekkert sérstaklega að reyna að semja tónlist héldu ný lög áfram að birtast mér af og til.

Árið 2021 spurði mamma mig hvort ég væri hættur að gera tónlist.

Spurningin kom mér algjörlega í opna skjöldu.

Það var augljóst að henni fannst eitthvað óeðlilegt við að ég væri ekki lengur að sinna tónlistinni. Og þegar ég fór að hugsa málið vissi ég auðvitað sjálfur að ég átti heilan lager af nýjum lagahugmyndum.

Guð má vita að þessi steinbörn voru farin að valda mér depurð sem ég hafði fram að þessu ekki náð að koma í orð.

Þessi einfalda spurning frá mömmu varð því til þess að ég fór í óvænta sjálfsskoðun.

Ef ég ætlaði í alvöru að kalla mig tónlistarmann, þyrfti ég þá ekki að halda áfram að gefa út tónlist?

Á sama tíma áttaði ég mig á því að ég nennti engan veginn að byrja allt upp á nýtt. Enn einu sinni.

Ég ákvað því að gera litla tilraun.

Ég gaf sjálfum mér það í 45 ára afmælisgjöf að panta tíma í hljóðveri.

Síðan hringdi ég í eina bandið sem ég var enn að minnsta kosti örlítið starfandi í, Maus, og spurði félagana hvort þeir vildu gefa mér það í afmælisgjöf að mæta og hjálpa mér að hljóðrita eitt af nýju lögunum mínum.

Mér til mikillar ánægju samþykktu þeir það allir.

Saman hljóðrituðum við lagið „Fyrirgefning“.

Maus á sviði fyrir framan áhorfendur

Þegar það var tilbúið kastaði ég teningunum og leyfði hinum þremur að velja hvort þetta yrði upphafið að nýju tímabili hjá Maus eða endurvakningu sólóferilsins míns.

Niðurstaðan varð sú að sólóferillinn reis upp úr gröfinni í september 2021.

Næsta lag, „Please Don't Go“, kom út um ári síðar og rataði í annað sæti vinsældalista X977.

Allt í einu var ég kominn af stað aftur.

Og í þetta skiptið ætlaði ég ekki að hætta.

Biggi Maus og félagi við brjóstmynd fyrir framan bókahillur

2022–2024 – Litli dauði og stóri hvellur

Eitt leiddi af öðru og boltinn fór aftur að rúlla.

Ég hafði flutt til Akureyrar og fór að svipast um eftir besta pródúsernum sem ég þekkti á svæðinu. Það var Toggi Nolem.

Hann hafði verið hluti af Skyttunum og gert frábæra hluti með Kött Grá Pjé.

Við ákváðum að gera saman plötu sem yrði eins konar óður til nýbylgjunnar sem varð til snemma á níunda áratugnum.

Við fengum fljúgandi byrjun.

Svarthvít mynd af Bigga Maus með svartar hendur við augun

Fyrsta lagið sem við gáfum út saman, „Má ég snúza meir?“, varð fyrsta lagið mitt til að ná efsta sæti vinsældalista. Það fór á topp Dominos-listans í lok janúar 2023.

Breiðskífan okkar, Litli dauði / Stóri hvellur, kom síðan út í júní árið eftir og fékk frábæra dóma tónlistargagnrýnenda.

Platan var valin breiðskífa vikunnar á Rás 2 og fékk glimrandi dóma frá Andreu Jónsdóttur og Arnari Eggert Thoroddsyni. Arnar sá einnig ástæðu til þess að nefna plötuna eina af Rokkplötum ársins í árlegu uppgjöri sínu hjá Morgunblaðinu þá um áramótin. Reykjavík Grapevine gerði plötunni mjög góð skil og gerði m.a. grein þar sem fjallað var um hvert lag fyrir sig. Ef árin hafa kennt mér eitthvað þá er að maður veit aldrei hvernig og bara hvort ný tónlist ratar sína leið. Ég var því gífurlega þakklátur fyrir slíkar móttökur.

Plötukápa Litli dauði / Stóri hvellur

Það var einstaklega ánægjulegt að finna að tónlistin ætti enn erindi, bæði við mig sjálfan og aðra.

En nú þurfti að finna leið til að koma henni almennilega á svið.

Svarthvít hópmynd af Bigga Maus og hljómsveit

2024–? – Biggi Maus & MeMMM

Til að fylgja plötum eftir þarf maður hljómsveit.

Á Akureyri tókst mér að safna í kringum mig frábærri tónleikasveit sem fékk nafnið MeMMM.

Hópurinn er skipaður fyrsta flokks hljóðfæraleikurum og upptökustjórum:

  • Hallgrími Jónasi Ómarssyni á gítar.
  • Valgarði Óla Ómarssyni á trommur.
  • Stefáni Gunnarssyni á bassa.
  • Þorsteini Kára Guðmundssyni á hljóðgervla.

Samstarfið hefur verið einstaklega blómlegt og gefandi. Það er frábært að vera aftur orðinn hluti af starfandi hljómsveit, þar sem allir leggja sitt af mörkum og tónlistin fær að þróast í sameiningu.

Saman höfum við mótað okkar eigin samsuðu af indírokki og proggi, þar sem lögin fá að taka á sig nýjar myndir í lifandi flutningi.

Engir tveir tónleikar eru nákvæmlega eins.

Fyrstu útgefnu upptökurnar frá okkur komu snemma, eftir að okkur var boðið að taka þátt í tónleikaröð X977 sem hét Live in a Fishbowl.

Fljótlega fylgdu tvær smáskífur í kjölfarið: „Blóðmjólk“, sem kom út sumarið 2025, og „Bandalag dauðra dúfna“, sem kom út um haustið sama ár.

Þriðja smáskífa hópsins, „Vindurinn“, kom síðan út í kringum fimmtugsafmælið mitt í maí 2026.

Og nú er sköpunarorkan meiri en nokkru sinni fyrr.

Við vinnum að tólf laga breiðskífu sem mun eingöngu innihalda áður óútgefið efni. Það verður fyrsta eiginlega hljómsveitarplatan mín í 23 ár.

Stefnan er að hún líti dagsins ljós á seinni hluta ársins 2027.

Þegar ég lít yfir þessa sögu finnst mér eiginlega merkilegast hvað tónlistin hefur alltaf fundið leið aftur inn í líf mitt. Stundum hefur hún verið í forgrunni, stundum legið í dvala á meðan lífið hefur tekið aðrar stefnur.

En hún hefur aldrei alveg þagnað.

Og eftir öll þessi ár, allar þessar hljómsveitir, plötur, tilraunir, krókaleiðir og óvæntu beygjur er ég enn að gera það sama og ég gerði tíu ára gamall með Casio-skemmtarann minn.

Að búa til ný lög og sjá hvað gerist.

Bókanir · Samstarf · Fyrirspurnir

Höfum samband.

bigitalmusic@gmail.com

Senda fyrirspurn↗